Tangabryggja hero blogg
Þjónusta

Verðskrá

Verðskrá

Eftirfarandi verð gilda um þjónustu okkar.

Staðfestingar og,- umsýslugjald – 30.000 kr.

Umsýslugjald er innheimt í upphafi nýs samnings. Þetta á við þegar nýr viðskiptavinur byrjar að leigja hjá okkur og þegar núverandi viðskiptavinur flytur sig á milli íbúða.

Ef viðkomandi hættir við að leigja eignina, er gjaldið ekki endurgreiðanlegt.

Staðfestingar- og umsýslugjald greiðir fyrir m.a.:

  • Úttektarskýrslu við afhendingu og skil á leiguíbúð
  • Sílenderskipti við skil á leiguíbúð
  • Vinnu við gerð leigusamnings og fylgigagna

Staðfestingar- og umsýslugjald greiðir ekki fyrir skemmdir á íbúð sem koma fram við lokaúttekt eða málun á íbúð.  Ef upp koma vandamál varðandi skemmdir á íbúð við skil fær leigutaki sendan sér reikning fyrir matskostnaði samkvæmt úttektarskýrslu.

Nafnabreyting – 9.000 kr.

Heimilt er að nafnabreyta leigusamningum svo lengi sem nýr leigutaki uppfylli úthlutunarskilyrði Heimstaden. Nýr aðili að leigusamningi samþykkir þá að taka við samningi í þeirri mynd sem hann er og tekur við öllum þeim skyldum sem á fyrri leigjanda liggja.

Afrit á löggiltan skjalapappír – 2.000 kr.

Óski leigutaki eftir því að fá afrit af leigusamningi á löggiltan skjalapappír.

Nýtt afrit af frumriti – 500 kr.

Óski leigutakar eftir því geta þeir fengið nýtt afrit af frumriti.

Flutningsgjald – 15.000 kr.

Vilji leigutaki flytja sig á milli íbúða í eigu Heimstaden er innheimt flutningsgjald að upphæð 15.000 kr.

  • Vilji leigutaki flytja sig á milli íbúða á meðan á leigusamningi stendur þá getur hann flutt sig á milli íbúða (fái hann nýju íbúðinni úthlutað) og greiðir þá flutningsgjald, krónur 15.000 ásamt umsýslugjaldi vegna nýju íbúðarinnar, krónur 30.000.
  • Vilji leigutaki flytja sig á milli íbúða við lok leigusamnings þá getur hann flutt sig á milli og greitt einungis umsýslugjald, krónur 30.000 vegna nýju íbúðarinnar.

Málning við skil á íbúð

Heimstaden býður upp á að mála íbúðir fyrir leigutaka, kostnaður við það er 1.750 kr á fermeter af gólfi með efni.

Þrif við skil á íbúð

Kostnaður við þrif á íbúð er 66.900 kr.

Trygging

Umsækjandi útvegar tryggingu sem nemur 3 mánaða leigu í formi ábyrgðar eða staðgreiðslu. Lestu meira um úthlutunarferlið hér.

Greiðsluskilmálar

Leigu skal ávallt greiða fyrsta dag hvers mánaðar. Leiguverð er ávallt tengt neysluvísitölu og er endurskoðað mánaðarlega m.v vísitöluna.
Leiguverð er endurskoðað á 11 mánaða fresti þegar um  ótímabundinn samning er að ræða.