![Fjölskylda í tölvu](https://heimstaden.com/app/uploads/sites/4/2021/12/2021-040-Family_in_sofa_with_laptop-Family_in_daily_life.jpg)
Í MyHome getur þú uppfært prófílinn þinn, sent þjónustubeiðnir, skoðað leigusamninginn, séð yfirlit yfir reikninga og annað sem er mikilvægt í samskiptum okkar á milli. MyHome er í stöðugri þróun og það munu smátt og smátt bætast við ný verkfæri á síðuna.
Markmiðið með MyHome er að bæta þjónustuupplifun og að einfalda samskiptin.
Það er auðvelt að skrá sig! Fylgdu tenglinum að neðan til að fara í nýskráningu. Ath! Það er mikilvægt að nota sama tölvupóstfang og þú notaðir þegar þú skrifaðir undir leigusamninginn.